Netfang: irisdoro@simnet.is
Vefsíða: http://blog.central.is/irisdoro
Kær kveðja,
Sigurlína
Netfang: linadav@hi.is
Fyrir þessi jól tókum við ákvörðun um það að skrifa ekki jólakort eins og venjulega heldur leysa málið á auðveldari og fljótlegri hátt. Við sitjum hér í Gautaborg og höfum ærinn starfa af námi og skriftum fyrir utan sitthvað sem til fellur utan dagskrár eins og gengur. Kveðjur okkar í ár verða þess vegna sendar gegnum tölvurnar. Þeir sem ekki hafa netfang fá vonandi þetta bréf sent í póstinum, kannski ekki fyrr en milli hátíðanna, því að Ragnar Ingi er rétt í þessu að skila af sér stórri ritgerð á sænsku um áhrif  fornra bragarhátta á sænskan nútímakveðskap og Sigurlína er að hamast við að ljúka við grein sem hún þarf að kynna á ráðstefnu í Slóveníu 4. janúar nk. Það hefur því lítill tími gefist til bréfaskrifta.
Hér er sem sagt nóg að gera. Við komum hingað um miðjan september og settumst að á Helenebergsgötunni þar sem við bjuggum þar til fyrir tæpri viku (sjá síðar). Þá var Davíð í Þýskalandi að nema mál innfæddra þar og sat í Berlín. Hann fór svo þaðan á námskeið í söng í London og flaug svo hingað til Gautaborgar 22. september. Hann tók um það leyti ákvörðun um að læra utanskóla í vetur, sækja tíma hjá einkakennara sínum í London og geyma aðra þætti námsins þar til síðar. Þegar Davíð kom hingað var Sigurlína reyndar farin á ráðstefnu til London (þau hittust samt ekki), þaðan fór hún á aðra ráðstefnu til Manitoba og svo á þriðju ráðstefnuna í Reykjavík. Davíð og Ragnar Ingi flugu svo til Reykjavíkur 12. október. Þar gekk á ýmsu. Ragnar Ingi mætti hjá doktorsnefnd sinni að morgni 13. okt. (það var svona í samræmi við annað að títtnefndur Ragnar Ingi skyldi ganga í sitt síðasta próf á námsferlinum föstudaginn 13. en það er önnur saga) og sat þar fyrir svörum og fer ekki sögum af öðru en hann hafi leyst nokkuð skynsamlega úr spurningunum. Þann 14. vorum við svo viðstödd giftingarathöfn í Fella- og Hólakirkju þar sem Kolbeinn og Hrafnhildur gengu í það heilaga. Falleg athöfn og veislan skemmtileg, salatið gott.
Næst snerum við okkur að því að ganga frá Sögu Krýsuvíkursamtakanna sem fór í prentun þremur dögum eftir að við komum heim. Davíð og Ragnar Ingi héldu svo utan viku seinna, sá fyrrnefndi til London að læra meiri söng, hinn til Gautaborgar að læra bragfræði. Sigurlína hafði hins vegar störfum að sinna á Íslandi og kom hingað út í byrjun nóvember.
Ragnar Ingi sótti bragfræðiráðstefnu í Stokkhólmi 10. nóvember, dvaldi þar í þrjá daga og sneri þaðan laugaður af nýjum straumum í bragfræðirannsóknum. Ekki er ljóst hvort honum fór mikið fram en hann var afar ánægður með ráðstefnuna, Stokkhólm og sjálfan sig þegar heim kom.
Davíð hefur búið hér það sem af er haustinu og verður væntanlega hér hjá okkur út veturinn. Þegar hann ákvað, eins og fyrr kom fram, að stunda einkanám í London var ljóst að húsnæðismálin yrðu þröskuldur á veginum. Þar í borg er erfitt að fá húsnæði og þeir sem komast einhvers staðar inn borga svimandi upphæðir fyrir hvern fersentimetra. Davíð dvelur því hér og flýgur svo bara yfir til London og er þar fjórðu hverja viku, sækir tíma og býr á ódýru hóteli, æfir svo á eigin vegum þess á milli. Býr í stofukróknum hjá foreldrum sínum og húsaleigan er leyndarmál eins og raforkuverðið hjá Landsvirkjun.
Gautaborgarháskóli leigir okkur húsnæðið sem við búum í hér. Á Helenebergsgötunni áttum við góða daga og leið ljómandi vel en svo það kom upp að Háskólinn ákvað að losa sig við húsnæðið þar. Þeir stríða víst við „ökonomiska problemmer“ eins og það heitir á máli innfæddra. Það varð því úr að við fluttum okkur um set, búum nú nánast í miðbænum í lítilli en afar skemmtilegri íbúð. Erum rétt að jafna okkur eftir að flytja föggur okkar um þveran bæinn, bera þær upp á 2. hæð, koma okkur svo fyrir með tilheyrandi hamagangi. Við ætlum að eyða jólunum í það að hvíla okkur svolítið, borða þurrkað kex, heilhafra, marineruð eggaldin og hrátt pasta, drekka ópastöriseraðan ávaxta- og gulrótarsafa þegar við erum þyrst. Himneskt. Svo förum við í líkamsræktarstöðina sem er hér rétt við hliðina á okkur og komum þaðan rennsveitt og uppfull af endorfíni og ómældri hamingju. Svoleiðis eiga jól að vera.
Á vorönninni er áætlað að halda sama strik, hafa mikið að gera og láta hendur standa fram úr ermum. Sigurlína flytur fyrirlestur um fagmennsku íslenskra kennara á ráðstefnu í Slóveníu 4. janúar, Ragnar Ingi flytur fyrirlestur um þróun stuðlasetningar í íslenskum kveðskap í London 19. janúar (á afmæli gamla Jóns á Hvanná) og svo skjótumst við heim í febrúar. Ragnar Ingi heldur þá fyrirlestur í Kennaraháskólanum um stuðlasetningu í ljóðum Jónasar Hallgrímssonar og Sigurlína situr ráðstefnu á vegum Menntaskólans í Hamrahlíð og  Flensborgarskóla. Einnig er ætlunin að hún vinni með samstarfskonu sinni, Penelope Lisi, að frekari samvinnu við þessa skóla og ýmsa aðra.
Bæði Ragnar Ingi og Sigurlína vinna síðan að stærri verkefnum meðfram þeim smærri sem hér hefur verið minnst á. Ragnar Ingi skrifar doktorsritgerð sína um þróun stuðlasetningar í íslenskum kveðskap og Sigurlína skrifar kennslubók um matsfræði.
Af  eldri börnunum okkar er allt gott að frétta að því er við Gautaborgarar best vitum.. Ingibjörg er hjúkrunarstjóri á Vífilsstöðum, Arndís er innheimtustjóri hjá Lýsi h.f., Tómas syngur hér og þar um heiminn og Aðalsteinn er sjómaður í Grindavík. Barnabörnin og barnabarnabörnin vaxa og dafna og líkjast afa sínum og ömmu (langafa og langömmu) í Svíþjóð! Gott mál.
Við sendum ykkur öllum bestu kveðjur, óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Vonumst til að sjá ykkur öll hress og kát á nýja árinu þegar við komum heim í maí.
Megi allar góðar vættir vera með ykkur.
Bestu kveðjur
Ragnar Ingi, Sigurlína, Davíð Ingi
Storgatan 13b, Lgh 221
41124 Göteborg
Sverige
ria@khi.is  (RIA)  linadav@hi.is  (SD)
Netfang: linadav@hi.is
Netfang: ragnhb@simnet.is
Vefsíða: http://stororrustan.blogspt.com
Netfang: elval@ismennt.is
Vefsíða: http://elval.bloggar.is
Vefsíða: http://blog.central.is/-aprik0sa
enn annars bara að kvitta,,
mig í linka!:;:D
Vefsíða: http://www.blog.central.is/boltakula
Ættarmótið var frábært í alla staði - takk kærlega fyrir þessa yndislegu helgi.
Kv. Ragnhildur A
Vefsíða: http://www.blog.central.is/raggzy
en ætla að skella mér í bloggið ... bless í bili
Netfang: gudlaugfroskur@simnet.is
Vefsíða: http://www.blog.central.is/gudlaugi
Netfang: ragnhb@simnet.is
Vefsíða: http://stororrustan.blogspt.com