Afmæliingibjargirnar

Kidda Ben. og Sídu á afmæli í dag.Til hamingju með daginn systir góð'

Kveðja að austan
Ragnhildur sys.

Nýjar - gamlar myndiringibjargirnar

Halló. Var að setja myndirnar úr Vaðbrekkubókinni inn í albúmið hér. Myndin hér að neðan átti að vera í þeirri bók en gleymdist. Hún er af leyfisbréfi gömlu hjónanna þess efnis að þau megi verða hjón. Svo var ég einnign að setja inn slatta af myndum frá ættarmótinu í sumar. Kveðja, Ragnhildur. A

Víningibjargirnar

Lumar ekki einhver góðri uppskrift að berjalíkör og eða berjavíni og væri til í að láta mig njót þess með sér.
Segir Ragnhildur Ben og Sídu em er á leið í berjamó.

19 ágústingibjargirnar

Í dag er mikill afmlælisdagur í fjölskyldunni. 

Í dag eiga afmæli  Sirrý Sigurðurdóttir( Danna og Siggu), hún er 24 ára og svo hann Guðjón Erni Ásgerðarson ( Sigga og Evu) en hann er 5 ára.
Til hamingu með daginn Sirrý og Guðjón Ernir

Lauga okkar var fædd á þessum degi. Hún hefði orðið 81 árs í dag, en lést langt um aldur fram. Blessuð sé minning Laugu


Með bestu kveðju Gréta Danna og Siggu

Meistariingibjargirnar

Sælar ingibjargir,

það er skammarlega langt síðan ég hef skrifað eitthvað á þessa síðu en nú er gott tilefni.  Í dag varði Hanna Sigrún með glæsibrag meistaraverkefni sitt við Háskólann í Skövde í Svíþjóð.
Til hamingju elsku Hanna okkar.
Hanna Sigrún er semsagt núna líftölvunarfræðingur og sameindalíffræðingur.
Hún er byrjuð að vinna á Akureyri, þar sem hún hefur ákveðið að setja sig niður.
Annars er allt gott að frétta úr Þjóðverjalandi.  Við Helgi keyptum hús hér í vetur og ég er búin að opna þar litla Praxis þar sem ég vinn við sjúkraþjálfun og höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð.  Fyrirtækið heitir ANNA-Praxis für Physiotherapie und Craniosacrale Therapie.
Það er mjög gaman að vinna svona heima og ráða sér sjálfur.

Bestu kveðjur frá Cuxhaven,
Anna

Ein með ölluingibjargirnar

Skrapp á Akureyri um verslunarmannahelgina.Hitti ættingja sem ég hef ekki lengi séð s.s. Stefán Einar Stefánsson og hans fjölskyldu.
Fór síðan í veislu ársins hjá Kiddu Sys og Edda þar voru slíkar kræsingar á borðum að ekki er hægt að lysa því.T.d. grillaðar  kóngakrabbalappir, grillaðru humar ,skötuselsréttur,ofnbakurðu lax.norskt hreindýr og íslenskt lamb.
og að lokum eðalkoníak eins og hver gat í sig látið og ég er ekki frá því að heiðursgestirnir(Þær systur Jóhanna og Sída) hafi ekki gengið beinar út.Ég er búin að setja inn nokkrar myndir úr þessari ferð sem ég vona að einhverjir hafi gama að skoð.
veri þið svo sæl að sinni farið vel með ykkur og verið góð hvert við annað.
Segir Raghildur Ben.og Sídu sem er enn södd eftir ferðina.

Nýjar myndiringibjargirnar

Halló
Ég setti inn myndir af ættarmótinu en það vantar samt fleiri. Ég hefði viljað skíra myndirnar en fann ekki út úr því. Þegar ég skoða myndir inni á blogg síðunni  verða þær alltaf svo litlar. Er eitthvað hægt að gera við því?
Bestu kveðjur
Rósa

Ættarmótiðingibjargirnar

Komið þið sæl

Ég reyndi að koma þessum texta frá mér í gær en eitthvað fór hann suður með sjó. Geri aðra tilraun núna.

Til hamingju með þessa flottu bloggsíðu.
Virkilega hugguleg og aðlaðandi.
Mig langar til að þakka kærlega fyrir mig og mína á ættarmótinu á Vaðbrekku. Takk takk ættarmótsnefnd.
Það var óskaplega skemmtilegt að kynnast öllu þessu fólki sem allt í einu var hætt með bleiu og jafnvel sjálft komið með bleiubarn! Merkilegt hvað árin líða, ég, Jóhann og Snorri skírnartríóið, alltaf jafn ungleg og samt stækka öll þessi blessuðu börn....  Ein ekki alveg að fatta það.
Aðeins af geðveikt skemmtilegu ættarmóti. Fyrst matarmálin (matur er mannsins megin). Kjötsúpan sem var í boði á föstudagskvöldinu var ljúffeng og urðu allir mettir og sælir. Takk kærlega kokkar. Hreindýrakjötið á grillið á laugardagskvöldinu var toppurinn á tilverunni, ljúffengt og þökkum við þeim Danna og Siggu fyrir það.
Svo er það veðrið. Það var merkilegt að sjá hve mikill máttur fylgir enn gömlu hjónunum, Ingibjörgu og Aðalsteini, að geta kallað fram þetta frábæra veður. Eitthvað var ég að dásama veðrið í eyru eldri sonar mínar og komst ég að þeirri niðurstöðu að þetta væri bara besta veðrið í löngu og ströngu ferðalagi okkar. Hann horfði í forundran á mig og tilkynnti mér að þetta ættarmótshelgarveður væri það besta sem við hefðum lent í í allt sumar!
Ratleikur í formi örnefnaleitar var geysivinsæll og rann lýsið af manni í stríðum straumum við þau hlaup. Að sjálfsögðu unnu þeir bestu! Það var frábært að skríða örþreyttur heim á tjaldstæði við óminn af harmonikku leik Ragnars Inga.
Til þess að skola svitann af skelltu menn og konur sér í Hrafnkelu. Þar voru hin ýmsu sundtök tekin og að öðrum ólöstuðum þá á Þorgils Hornafjarðargoði orðu skilið fyrir að ná því að synda nánast allar sundtegundir sem kenndar eru í skólum (baksund, bringa ofl.).
Mínir synir og Guðrún Sól Nonnabróður dóttir fundu sig fljótt í drullunni og dunduðu sér í eina þrjá klukkutíma í leirbaði og drullubaði, meðan sólarkrabbinn læsti sig í húð mömmunar á baðvaktinni....
Víða var farið í heimsóknir í hús/hýsi/bíl og þeginn kaffisopinn með súkkulaðiívafi. Rifjuð upp gömul kynni og til nýrra stofnað. T.d. hlakka ég til að fylgjast með Gísla hinum víðförla Hrafndísarsyni. Ákaflega óttalítill ungur maður á uppleið.
Það var mjög þarft að hafa hina glænýju og stórglæsilegu bók "Fimmtíu sumur í Hrafnkelsdal" við hendina þegar ekki var alveg ljóst hver var hvað og hvurs var hvað. Bestu þakkir fyrir það ritstjórn og aðrir sem að bókinni komu.
Hlaðan og uppþvottaaðstaðan í fjárhúsunum stóð vel fyrir sínu, gaman að geta þvegið upp og tekið vegfarendur tali í leiðinni. Uppvaskið lengdist kannski aðeins og varð svo huggulegt og skemmtilegt í staðinn.
Hlaðan var til margra hluta nytsamleg og mátti heyra þaðan óma tónlist á ýmsum tímum sólarhrings. Mátti m.a. heyra söng og gítarleik þeirra Jakobs hins sænska og Élínborgar hinnar sunnlensku þegar austfjarðaþokan lómaði fyrir utan Hrafnkelsdalinn og nóttin lagðist yfir.
Ég gleymi eflaust mörgu og mörgum sem vert væri að geta í upprifjun þessari svo hrikalega vel skemmtum við fjölskyldan okkur þessa fögru sumardaga í sveitinni þeirra ömmu og afa. Líka var ljúft að eiga stund með sjálfum sér í garðinum hennar ömmu og horfa á öll trén sem staðið hafa af sér veður og vind.
Ég hafði með mér heim ljúfar minningar og heiftarlega kvefpest sem ég næ barasta ekki úr mér. Svei þeim sem bar hana í mig.
Kærar kveðjur með von um skjóta endurfundi.

Rósa og fjölskylda í Sólinni  í Hafnarfirði ( sko sólin skein glatt í gær þegar bréfið var samið!)

 

Tónleikar og heiðarferðingibjargirnar

Var með nokkra ættingja að norðan um helgina,var víða þvælst um fjórðunginn,niður á fjörðum og upp til heiða.Setti inn nokkrar myndir sem teknar voru  á þvælingi þessum.Annars allt gott að frétta af mér og mínum,ég í sumarfríi og nýt þess að gera ekki neitt.það er helst að maður sletti í eina og eina köku að sveitasið.Tíðindi ekki önnur af mínum þæ þessa dagana.
Verið þið svo sæl að sinni munið að fara fel með ykkur og vera góð hvert við annað.
segir ragnhildur Ben.og Sídu

Þið finnið mig undir "R"ingibjargirnar

Takk fyrir síðast kæru Ingibjargir. Ég er sammála henni Guðlaugu frænku minni að þetta hafi verið einstaklega vel heppnað. Ég ætlaði nú bara að minna á mig og benda á tengil inn á bloggsíðuna mína hér til hliðar. Þið finnið mig undir "R".
Drengirnir mínir eru núna í "sveit" hjá Grétu bezt og una hag sínum vel. Gátu bara ekki beðið eftir að komast í burtu frá gamla settinu í sæluna í Fellabæ. Enda fá þeir alltaf að gera eitthvað skemmtilegt sem leyfist sjaldnast heimafyrir hjá Grétu bezt og co. Í gærkveldi fékk Brynjar Leó til dæmis að skreppa á rúntinn niður á Seyðisfjörð með unga fólkinu á bænum, á official háttatíma.
Hér heima fyrir eru lesnar tvær bækur áður en drengirnir fara að sofa. En hjá Grétu bezt og co. er t.d. byrjað á að láta Fanney og Stefán lesa, minnst fjórar bækur. Svo færa þeir sig um set í næsta herbergi og láta Grétu bezt lesa annað eins. Þannig ganga þeir á milli þar til allir sem heima eru hafa verið látnir lesa!!! Ekki amalegt að vera í Fellabænum og láta dekra við sig. Það er merkilegt að þegar þeir koma heim aftur þá detta þeir bara inn í sömu rútínuna hér heima, vita sín takmörk heimafyrir. Þess vegna er þetta bara hið bezta mál.

Ætlaði að heyra í þeim í síma í gær en þeir máttu nú ekkert vera að þvíGlottandi
Bestu kveðjur, Ragnhildur A

Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit