Úr sænska sjónvarpinu!!ingibjargirnar
http://tv4.se/klipp/93264.htmlÞetta er dóttir mín Alva með hljómsveitinni sinni Chokladfabriken (Súkkulaðiverksmiðjan). Hljómsveitin er nýstofnuð og það var algjör heppni að þeim var boðið að koma fram í sjónvarpinu og kynna sænska þjóðlagatónlist sem er orðin vinsæl hjá unga fólkinu.
Kveðjur frá stoltri móður
Steina Ara og Laugu
2007ingibjargirnar
Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla ættingjar og vinir um heim allan.Af mér og mínum er allt gott að frétta,fólk og fénaður vel fram gengin.
hér hefur bara verið sofið étið og lesið um hátiðirnar.
Tíð með eindæmum góð,auð jörð og hlýjindi.
Fátt annað títt af austurvígstöðunum.
Vona að Guð og lukkan leiki með ykkur á ári komandi.
Kveðja
Ragnhildur Ben ogSídu.
Gleðileg jól!!ingibjargirnar
Mig langar bara að senda öllum jólakveðjur hérna því ég er svo löt að ég sendi engin jólakort.Set in jólakortið hjá myndunum
Myndin er af jólatrjáormum (christmas tree worm) sem lifa í kóröllum, myndirnar tók Bo á Filippseyjum í mars í ár.
Bestu kveðjur
Steina Ara og Laugu og fjölskylda
Sídaingibjargirnar
Kíkið á þetta.http://thorsport.is/thorsport/ReadArticle.aspx?Id=93
Ragnhildur Ben og sídu
Danmörkingibjargirnar
Nú fer að styttast í það að við mæðgurnar skellum okkur til Kóngsins Köben. Vorum við svo yndislegar systurnar að við buðum móður okkar til Köben með okkur í fimm daga. Þar verður gist í notalegri íbúð í hliðargötu af Strikinu. Hvað það verður gaman að rölta á milli tuskubúða með móður minni og Ingunni systur. Hins vegar ætla ég að þræða pöbbana með Hrafndísi systur minni síðan. Var að lesa á mbl.is að skautasvell í Danmörku eru að bráðna, það þarf sko ekkert föðurland í þessa ferð, bara Bahamas fíling og peninga fyrir bjór.
Bið að heilsa.
Hafrún Ragnhildar Ben og Sídu.
Afmælisdagur afa.ingibjargirnar
Í dag er afmælisdagur afa. Í mínum huga er þetta afskaplega merkilegur dagur og þegar ég var lítil vissi ég um 2 menn sem áttu afmæli 6 des. Það var afi og Kristján Eldjárn þáverandi forseti. Mér fannst afi mikið merkilegri maður en forsetinn.Fyrir nokkrum árum sagði Steinunn Snædal frá Eirkíksstöðum hvað afmælisdagur afa míns tengdist bernksu hennar. Foreldrum hennar og systkinum var gjarnan boðið í afmæliskaffi í Vaðbrekku 6 desember. Þá var gengið báðar leiðir og farið yfir á Hrafnkeluhyl ef Jökla var á ís. Hún sagði mér að þessi heimsókn hefði byrjunin á jólunum í hennar huga. Auðvitað minntist hún líka á myndarskapin hjá henni ömmu í veisluföngum.
Blessuð sé minning afa.
Gréta Danna og Siggudóttir
Enn á lífi - ferðasaga.ingibjargirnar
Ég er á lífi...og ætla aðeins að segja af frábærri ferð sem ég fór núna um daginn.
Það byrjaði reyndar með smá skreppi til Kanada eða St.John í verslunarleiðangur með kallinum (hann var sko með til að bera poka). En þangað flugum við laugardaginn 4 nóv og vorum þar til miðvikudagsins 8 nóv. Það kvöld um kl. 11.30 var ég komin í flugstöðina og leiðin lá síðan á hótel í Keflavík þar sem ég náði að sofa ca 3 ½ tíma áður en ég fór aftur upp á flugstöð til að hitta saumaklúbbinn sem nú var á leið til Köben í skemmtiferð.
Við flugum út snemma á fimmtudagsmorgun og dvöldum á notalegu hóteli/gistiheimili í Kaupmannahöfn fram á laugardag en þá var ferðinni heitið yfir til Svíþjóðar þar sem Steina systir hafði af rausnaskap boðið okkur öllum í mat um kvöldið og gistingu síðustu nóttina. Það má öllum vera ljóst að maður verður ekki svikinn af svona boði, þetta hreinlega toppaði algjörlega ferðina, frábærar móttökur hjá henni, hún beið eftir okkur á lestarstöð í Lundi, fór með okkur á yndislegan pöbb þar og við fengum okkur auðvita eins og "einn lítinn" bjór eða vínglas og síðan var haldið áfram með lestinni til Eslöv þar sem hún býr. En frá Kaupmannahöfn og yfir til hennar í Eslöv er minna en klukkutímaferð með lest næstum heim að dyrum hjá henni. Heima beið Bútti með dekkað borð en hann hafði útbúið forréttinn og síðan sátum við langt fram eftir kvöldi og nutum matarins, þríréttuð sænsk máltíð með fínum vínum með og er liðið var á nóttina var farið í smá göngu um bæinn og þegar heim var komið var tilbúinn heitur réttur, "nattmat", að sænskum sið. Eftir þetta var farið að sofa, en eftir okkur biðu uppbúin rúm í þremur herbergjum.
Ég má nú ekki gleyma að seint um kvöldið kom heimasætan hún Alva heim með vinkonu sinni sem ætlaði einnig að gista, en þær voru að koma af einhverri skemmtun (þær höfðu verið að spila saman einhverstaðar) og það þurfti ekki mikið að suða í þeim til að fá þær til að spila nokkur lög á fiðlurnar. Alveg meiriháttar skemmtun. Síðan daginn eftir var farið niður í Lund, dómkirkjan þar skoðuð, farið á kaffihús og aðeins labbað um háskólasvæðið og að lokum lagt af stað með lestinni og núna beint á Kastrup og í flug heim. Ég vil benda ykkur sem þetta lesið á að við í saumaklúbbnum erum AÐEINS 9 STK. og það var eins og Steina gerði ekki annað en að taka á móti svona hópum.
Þúsund þakkir fyrir þessar frábæru móttökur systir, og saumaklúbburinn minn biður allur að heilsa.
Kveðja til allra sem nenna að lesa.![]()
Hrefna Ara og Laugu
Blönduósi
Nýr Bloggariingibjargirnar
Bara að láta ykkur vita um nýjasta bloggarann,það er frú Íris Dórothea Nonna Hávarðarkona. og er slóðin 123.is/irisdoro .Flott og skemmtilega síða eins og hún sjálf.Kveðja Ragnhildur Beno .og Sídu
Landnemi!!ingibjargirnar
Mig langaði bara að láta alla ættina vita að Einar, frumburðurinn minn er að flytja til fyrirheitna landsins í dag 4. október. (Akkurat þennan dag fyrir 26 árum var hann búinn til !!)Hann ætlar að fara að vinna og kemur til með að leigja hjá Stebbu í Klyfjaseli allavega til að byrja með.
Ef hann verður á vegi ykkar verið góð við hann, þetta er mjög góður strákur og fallegur. Hann er kanski bara líkur mér, þó það hafi ekki tekist mikið eftir því hingað til, en hann er allavega svolítið líkur Kolla, og hann er fallegur.
Kveðja frá Svíþjóð
Steina Ara og Laugu