Fermingingibjargirnar
Í dag fermist Lilja dóttir Fúsa og Grétu Aðalsteins.Til hamingju Lilja mín.
Ragnhildur Ben og Sídu.
Útskriftingibjargirnar
Bára systir útskrifaðist í dag frá Háskóla Íslands með mastersgráðu í mannauðsstjórnun.
Ég er stolt af henni, innilegar hamingjuóskir.
Ragnhildur Ben og Sídu
Inga Aðalsteins á afmæli í dag,til hamingju meða daginn Inga mín.
kveðja
R. Ben.
Til hamingju með daginningibjargirnar
Ég vildi bara benda á það að í dag voru tveir úr ættinni brautskráðir frá Menntaskólanum á Akureyri, þau Benedikt Halldórsson og Katrín María Víðisdóttir.Ég vil óska þeim báðum innilega til hamingju með áfangann.
Og fyrir ykkur sem ekki vita þetta, þá eru þau að ljúka námi við sama skóla og hann Aðalsteinn frá Vaðbrekku, langafi minn. Skólinn var að vísu gagnfræðskóli í þá daga, en þetta er samt sama stofnun.
Og gleðilegan þjóðhátíðardag.
Með kveðju,
Inga Steinunn.
Einu sinni, einu sinni enn...ingibjargirnar
... er ég orðin amma. Ingunn B. Ragnhildar Ben og Sídu eignaðist ofsalega fallegan dreng núna kl 21.11 í kvöld 5 maí. Hún valdi góðan dag til þess því það er nefnilega 30 ára brúðkaupsafmæli foreldra hennar.
Kveðja,
Montin amma
Ingunn Einarsdóttiringibjargirnar
Elsku Amma mín, Ingunn EinarsdóttirFædd 7.september 1914
Dáin 7. mars 2007
Mynd tekin 7.sept. 2004, á níræðisafmæli hennar.
Ég á eftir að sakna þín gamla....
Hrafndís, Ragnhildar Ben og Sídu
10 marsingibjargirnar
Sæl veri þið öll,ég heyrði í Kolla í morgun og bað hann mig að minna ykkur á að það styttist í 10 mars.En þennan dag var venjan að hittast hjá Ragnari,en þar sem hann er ekki á landinu ætlar Kolli að blása til samkundu í minningu Ingibjargar og verður það heima hjá honum í Gaukshólum 2.Sama fyrirkomulag og venjulega og vonar hann að sem flestir mæti.Kveðja Ragnhildur Ben. og Sídu.
Boðið til veisluingibjargirnar
Sæl öll sömul.Ég hitti þá feðga Jakob og Jón Hnefil í Kringlunni í gær, auk Svövu Jakobsdóttur sem er mikil myndarstúlka.
Lofaði Jakobi að koma þessu á framfæri sem flestra, margir eflaust búnir að fá póst sama efnis frá Tjörva.
Kveðja,
Inga Hanna
Kæru ættmenni!
Jakob S. Jónsson skrifar vegna áttræðisafmælis Jóns Hnefils!
Þar kom að því, að hann karl faðir minn er sem óðast að ná áttræðisaldri! Það gerist samkvæmt bókunum þann 29 mars næstkomandi. Mér þykir full ástæða til að halda uppá slíkt enda tilefni till mannfagnaðar og dagamunar aldrei of fá.
Þess vegna langar mig til að bjóða öllum ættmennum, sem á annað borð geta vettlingi valdið, til ofurlítils eftirmiðdagssamsætis,
laugardaginn 31 mars í Skólabæ við Suðurgötu í Reykjavík.
Nánari tímasetning og heimilsfang kemur í netpósti síðar. En ef þið vilduð taka eftirmiðdaginn frá, yrði enginn þakklátari en ég!
Svo bið ég ykkur, sem vilja og ætla að koma, að tilkynna mér það með orðsendingu á netfang mitt jakob.jonsson@telia.com og þá get ég á móti lofað, að enginn hverfur kaffiþyrstur eða kökusvangur af vettvangi.
Mikið væri svo gaman, ef allir gestir tækju með sér eitthvert skemmtiatriði í mannfagnaðinn … !
Ykkar frændi,
Jakob
Símar: 862 86 24, eða 0046707 59 80 30.
Smá öppdeit á fína íslenskuingibjargirnar
Sælar frænkur.Ég vildi bara heilsa upp á ykkur allar. Hef lítið litið hér inn og enn minna látið í mér heyra. Lífinu tókst að taka mig í soldinn ippon (mér hefur verið sagt að skilnaður á það til að gera það), en hausinn og daglega lífið er allt að komast aftur í lag. Af síðasta hálfa árinu er frá mörgu að segja, þið vitið náttúrulega að hann karl faðir minn gifti sig - mér þótti afskaplega vænt um að komast í þá veislu, og ég er svo glöð fyrir pabba hönd að hafa fundið svona yndislega konu.
Af mér að segja er það að mér gengur mjög vel í vinnunni, þar er alltaf nóg að gera. Þar er ég farin að vinna náið með Disney ásamt öðrum stórum "media" fyrirtækjum og svo er ég byrjuð í kvöldskóla. Reyni líka að fara út og hitta vinina öðru hvoru. Maður verður að gera það! Lífið er svo afskaplega tómlegt án vinanna og fjölskyldunnar.
Ég vona að þið hafið það allar gott og bið innilega að heilsa.
Halla Kolbeins og Þóru
Fatakynningingibjargirnar
Ég ætla að bjóða öllum frænkum stórum og smáum kynningu heima hjá mér.Sunnudaginn 18 febrúar verður opið hús
frá kl. 13-17.
Í boði verður eftirfarandi:
Newskin snyrti og heisluvörur,
kynnir er Sigríður Ragna Björgvinsdóttir.
Friendtex fatnaður
kynnir er Fjóla Orradóttir.
Veri allar frænkur velkomnar og takið með ykkur vini og velunnara.
Með bestu kveðju
Inga Aðalsteins.

ps.Ég á heima í Reynihvammi 5.

FRÆNKUHITTINGUR HJÁ INGU AÐALST.ingibjargirnar
Já !! ég ætla að hafa frænkuhitting fimmtudaginn 1 febrúar kl. 20,00 á heimili mínu að Reynihvammi 5 í Fellabæ.
Allar frænkur nær og fjær velkomnar!!
Viljið þið vera svo vænar að láta þær frænkur vita sem hanga ekki á netinu sólarhringinn sjöfaldann af þessu samkvæmi.
Vinsamlegast tilkynnið komu ykkar í kommentum.
Með bestu kveðju
Ingibjörg Aðalsteinsdóttir