Ég segi það líka, takk fyrir þessa lesningu. Gaman að leyfa þeim sem komus ekki að fá
smá innsýn í þá mögnuðu stemmingu sem var á þessu ættarmóti.
Kveðja, Ragnhildur A
Ættarmótiðingibjargirnar
Komið þið sælÉg reyndi að koma þessum texta frá mér í gær en eitthvað fór hann suður með sjó. Geri aðra tilraun núna.
Til hamingju með þessa flottu bloggsíðu. Virkilega hugguleg og aðlaðandi.
Mig langar til að þakka kærlega fyrir mig og mína á ættarmótinu á Vaðbrekku. Takk takk ættarmótsnefnd.
Það var óskaplega skemmtilegt að kynnast öllu þessu fólki sem allt í einu var hætt með bleiu og jafnvel sjálft komið með bleiubarn! Merkilegt hvað árin líða, ég, Jóhann og Snorri skírnartríóið, alltaf jafn ungleg og samt stækka öll þessi blessuðu börn.... Ein ekki alveg að fatta það.
Aðeins af geðveikt skemmtilegu ættarmóti. Fyrst matarmálin (matur er mannsins megin). Kjötsúpan sem var í boði á föstudagskvöldinu var ljúffeng og urðu allir mettir og sælir. Takk kærlega kokkar. Hreindýrakjötið á grillið á laugardagskvöldinu var toppurinn á tilverunni, ljúffengt og þökkum við þeim Danna og Siggu fyrir það.
Svo er það veðrið. Það var merkilegt að sjá hve mikill máttur fylgir enn gömlu hjónunum, Ingibjörgu og Aðalsteini, að geta kallað fram þetta frábæra veður. Eitthvað var ég að dásama veðrið í eyru eldri sonar mínar og komst ég að þeirri niðurstöðu að þetta væri bara besta veðrið í löngu og ströngu ferðalagi okkar. Hann horfði í forundran á mig og tilkynnti mér að þetta ættarmótshelgarveður væri það besta sem við hefðum lent í í allt sumar!
Ratleikur í formi örnefnaleitar var geysivinsæll og rann lýsið af manni í stríðum straumum við þau hlaup. Að sjálfsögðu unnu þeir bestu! Það var frábært að skríða örþreyttur heim á tjaldstæði við óminn af harmonikku leik Ragnars Inga.
Til þess að skola svitann af skelltu menn og konur sér í Hrafnkelu. Þar voru hin ýmsu sundtök tekin og að öðrum ólöstuðum þá á Þorgils Hornafjarðargoði orðu skilið fyrir að ná því að synda nánast allar sundtegundir sem kenndar eru í skólum (baksund, bringa ofl.).
Mínir synir og Guðrún Sól Nonnabróður dóttir fundu sig fljótt í drullunni og dunduðu sér í eina þrjá klukkutíma í leirbaði og drullubaði, meðan sólarkrabbinn læsti sig í húð mömmunar á baðvaktinni....
Víða var farið í heimsóknir í hús/hýsi/bíl og þeginn kaffisopinn með súkkulaðiívafi. Rifjuð upp gömul kynni og til nýrra stofnað. T.d. hlakka ég til að fylgjast með Gísla hinum víðförla Hrafndísarsyni. Ákaflega óttalítill ungur maður á uppleið.
Það var mjög þarft að hafa hina glænýju og stórglæsilegu bók "Fimmtíu sumur í Hrafnkelsdal" við hendina þegar ekki var alveg ljóst hver var hvað og hvurs var hvað. Bestu þakkir fyrir það ritstjórn og aðrir sem að bókinni komu.
Hlaðan og uppþvottaaðstaðan í fjárhúsunum stóð vel fyrir sínu, gaman að geta þvegið upp og tekið vegfarendur tali í leiðinni. Uppvaskið lengdist kannski aðeins og varð svo huggulegt og skemmtilegt í staðinn.
Hlaðan var til margra hluta nytsamleg og mátti heyra þaðan óma tónlist á ýmsum tímum sólarhrings. Mátti m.a. heyra söng og gítarleik þeirra Jakobs hins sænska og Élínborgar hinnar sunnlensku þegar austfjarðaþokan lómaði fyrir utan Hrafnkelsdalinn og nóttin lagðist yfir.
Ég gleymi eflaust mörgu og mörgum sem vert væri að geta í upprifjun þessari svo hrikalega vel skemmtum við fjölskyldan okkur þessa fögru sumardaga í sveitinni þeirra ömmu og afa. Líka var ljúft að eiga stund með sjálfum sér í garðinum hennar ömmu og horfa á öll trén sem staðið hafa af sér veður og vind.
Ég hafði með mér heim ljúfar minningar og heiftarlega kvefpest sem ég næ barasta ekki úr mér. Svei þeim sem bar hana í mig.
Kærar kveðjur með von um skjóta endurfundi.
Rósa og fjölskylda í Sólinni í Hafnarfirði ( sko sólin skein glatt í gær þegar bréfið var samið!)
Athugasemdir
2
Ragnhildur A skrifar:
04. ágúst 2006 klukkan 17:03
3
Steina Ara og Laugu skrifar:
Greinilega mestu mistök að láta sig vanta á svona samkomu. En eftir að hafa verið svona lengi fjarri stórum samkomum þá hefði örugglega verið erfitt fyrir mig fyrir mig að samlagast þessum stóra hóp. Hvað voru annars margir mættir á þetta mót?
/Steina "útlendingur"
/Steina "útlendingur"
05. ágúst 2006 klukkan 03:34
4
Gréta Aðalst. skrifar:
Lokatölur eru 118 manns sem mættu á ættarmótið.
05. ágúst 2006 klukkan 22:10
5
Rósa Jóns og Guðrúnar skrifar:
Steina mín. Þín var sárt saknað, sem og hinna sem komust ekki. Hafðu samt ekki áhyggjur... Við verður ennþá jafnungar eftir fimm ár er dansinn dunar á ný! Talandi um dans, þá var reyndar minna dansað en efni stóðu til en þeim mun meira leikið sér og sungið.
Kær kveðja
Kær kveðja
05. ágúst 2006 klukkan 23:35
6
Stefania M.Aradottir skrifar:
Sæl Rósa virkilega skeptilegur pistill Kveðja Stef M.Ara.
10. ágúst 2006 klukkan 17:20
7
Stefania M.Aradottir skrifar:
\'Eg meina skemtilegur pistill Kveðja sama
10. ágúst 2006 klukkan 17:22
Bestu þakkir fyrir þessa skemmtilegu lesningu og
takk fyrir samveruna á ættarmótinu. Þetta var snilldarsamkoma :)