Sýning í Árbćjarsafniingibjargirnar

TÁLGAÐ ÚR GRÆNNI GREIN

Til sjávar, til sveita.

Hrefna Aradóttir


21. júní til 5. júlí 2008


Velkomin á sýninguna mína í Listmunahorni Árbæjarsafns.

Sýningin opnar laugardaginn 21.júní kl. 14.00

og verður síðan opin frá 10 til 17 alla daga.


Verkin sem ég sýni eru tréskurðarverk unnin eftir gömlum myndum.

Verkin tileinka ég foreldrum mínum

Til sjávar, tileinka ég pabba mínum Ara Bergþórssyni f. 1913 d. 1986, en hann var sjómaður á Norðfirði alla sína tíð. Eftir að hann kom í land vann hann við net hjá Netagerð Friðriks Vilhjálmssonar eins lengi og starfsgeta hans leyfði.

Sögurnar hans af sjónum og myndir frá þeim tíma eru kveikjan að verkum í minningu hans.


Til sveita, tileinka ég mömmu minni Guðlaugu Ingibjörgu Aðalsteinsdóttur f. 1925 d. 1991, en hún ólst upp á Vaðbrekku í Hrafnkelsdal sem er 397 m yfir sjávarmáli og næstum eins langt frá sjó og nokkur byggð er á Íslandi. Þó svo að hún hafi sest að í Neskaupstað og búið öll sín fullorðinsár við sjóinn þá var sveitin henni alltaf kær.

Myndir sem tengjast Vaðbrekku og sögur sem mamma sagði eru kveikjan að verkum í minningu hennar.


Annað, einnig sýni ég jólasveina sem hafa verið aðalframleiðslan mín síðan 1997. Síðast liðin 4 ár hef ég líka unnið fermingarstyttur og aðrar tækifærisstyttur eftir myndum og eru nokkrar þeirra einnig hér til sýnis.

 

Allir velkomnir.

Athugasemdir

1
Steina Ara og Laugu skrifar:
Hæ Hrefna!
Flott hjá þér.
Ég kem og skoða en því miður ekki á laugardaginn heldur 3 eða 4 júlí.
Kveðjur Steina stóra systir
17. júní 2008 klukkan 21:52
2
Inga Hanna skrifar:
Til hamingju með þetta, hlakka til að skoða. Er einmitt á leiðinni í bæinn. Reyni að kíkja annað hvort þegar við komum í bæinn núna (28.júlí) eða 16.júlí.
Kveðja Inga Hanna
26. júní 2008 klukkan 12:03

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit