Viđbót í Vađbrekkućttinaingibjargirnar

Mér fannst vera kominn tími á smá tilkynningu hér inn.
Þann 31. mars síðastliðinn bættist einn Vaðbrekkumaður í hópinn.
Hún Hanna Sigrún (dóttir Helga, sonar Jóhönnu) eignaðist lítinn strák.
Hann er alveg gullfallegur og heitir Gunnar Flóvent Guðmundsson.
Þið getið séð mynd af honum hérna: http://barnanet.is/geisli

Við erum að sjálfsögðu öll hæstánægð, nýbakaðir foreldrarnir auk foreldra minna (sem urðu þar með amma og afi) og svo að sjálfsögðu við systkinin sem erum nú stóru frænkur og frændi.

Ég óska Hönnu og Gumma aftur innilega til hamingju.

Bestu kveðjur,
Inga Steinunn.

Athugasemdir

1
Til hamingju með þennan flotta strák. Ég fékk reyndar sms í nótt frá bróður mínum um að Tumi hefði eignast dreng í nótt og í Katrín (dóttir Stebbu) eignaðist stelpu í lok mars. Svo að Vaðbrekkumönnum fjölgar ört þessa dagana. Bestu kveðjur, Hrefna Ara og Laugu
10. apríl 2008 klukkan 10:00
2
stefanía M. Aradóttir skrifar:
Innilega til hamingju með drenginn. kv. Stef.M.Ara.
10. apríl 2008 klukkan 21:10
3
Ragnhildur Ben skrifar:
Til hamingju
11. apríl 2008 klukkan 06:54

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit