Það er ekki beint nein leyndarmál á fjölskyldumyndunum heldur, en allir þurfa ekki að vita hvernig farið er inná þær. "leyniorðið" er eslov svo núna er bara að skoða.
Takk fyrir að þú hefur áhuga.
Kveðjur Steina
Kveđjur frá Svíţjóđingibjargirnar
Sælar allar! Það er ósköp lítið líf á þessari síðu, allar vonir mínar um að þetta yrði tengiliður við ættina fóru út um þúfur.Ég vil samt senda inn smá innlegg ef einhver skyldi hafa áhuga á að vita eitthvað um mig og mína.
Öll börnin eru flutt frá mér. Einar býr í Reykjavík og er búinn að vera þar síðan í oktober 2006. Ívar býr í Malmö og lærir við Háskólann þar. Alva er á lýðháskóla i Arvika sem er uppi í miðri Svíþjóð (700 km að heiman).
Svo til þess að okkur mundi ekki leiðast erum við með tvö ný börn, 18 ára stelpu frá Tyrklandi sem heitir Pelin og 17 ára strák frá Japan sem heitir Ken. Þessir krakkar eru skiptinemar og ganga bæði í menntaskólann hér í Eslöv. Þetta heldur lífi í okkur núna yfir veturinn þegar lítið er hægt að kafa.
Mig langar líka til að segja frá að við erum farin að leggja myndir á netið sem allir mega sjá http://overklighet.se/ og svo eru líka myndir sem eru meira bara fyrir fjölskylduna en ef einhver hefur sérstakan áhuga á að fá að sjá þær þá má biðja um aðgangsorðið á steina.aradottir@bredband.net
Ég vil líka þakka alveg ofsalega vel fyrir þær heimsóknir sem ég fékk síðastliðið ár. Ragnar og Sigurlína komu og svo komu Danni, Sigga og Fanney dótturdóttir þeirra, þessar heimsóknir glöddu mig alveg svakalega.
Ég er að skipuleggja ferð til Íslands í sumar með kafarafélaginu sem ég er í, þetta verður væntanlega í júli, við komum til með að stoppa í viku til 10 daga og nota mest af tímanum til að kafa. Ef einhver á eða veit um gott sumarhús í nágrenni Reykjavíkur og vill leigja okkur það þá endilega hafið samband.
Kveðjur Steina Ara og Laugu
Athugasemdir
2
Steina Ara og Laugu skrifar:
24. janúar 2008 klukkan 11:18
3
Inga Hanna skrifar:
Gaman að heyra af ykkur. Vissi ekki að þið væruð áhugafólk um köfun. Allt gott af okkur að frétta, Máni minn er farinn að heiman svo nú erum við bara þrjú í kotinu. Hann ákvað að fara suður og halda áfram í menntaskólanum við Hamrahlíð. Er ekki búin að kíkja á myndirnar þínar en hlakka til.
Sammála þér með síðuna, ég er til dæmis algjör rati í öllu sem heitir blogg - hef heyrt ávæning af því hjá ættingjum að mér sé ekki einu sinni trúandi fyrir gsm síma því ég sé aldrei með hann á mér.
Kveðja Inga Hanna
Sammála þér með síðuna, ég er til dæmis algjör rati í öllu sem heitir blogg - hef heyrt ávæning af því hjá ættingjum að mér sé ekki einu sinni trúandi fyrir gsm síma því ég sé aldrei með hann á mér.
Kveðja Inga Hanna
10. febrúar 2008 klukkan 21:55
4
Inga Hanna skrifar:
Nú er ég búin að skoða allar myndirnar, þær eru æðislegar. Hvers lags myndavél ertu með í "ofansjávar"myndun? Ótrúlega flottir litir og mikil myndgæði. Og náttúrulega góðar myndir:)
Kv. Inga Hanna
Kv. Inga Hanna
11. febrúar 2008 klukkan 18:04
5
Steina Ara og Laugu skrifar:
Takk fyrir áhugann.
Síðustu fimm árin köfum við alltaf þegar hægt er....öll frí fara í að kafa. Garðurinn fer í niðurníðslu og heimilið líka, en það er allt í lagi það er alveg hægt að lifa við það.
Sama myndavél ofan sem neðansjávar, Nikon D200, vélin er bara sett í þar til gert "hulstur" sem er vatnsþétt og þolir þrýsting.
Kveðjur Steina
Síðustu fimm árin köfum við alltaf þegar hægt er....öll frí fara í að kafa. Garðurinn fer í niðurníðslu og heimilið líka, en það er allt í lagi það er alveg hægt að lifa við það.
Sama myndavél ofan sem neðansjávar, Nikon D200, vélin er bara sett í þar til gert "hulstur" sem er vatnsþétt og þolir þrýsting.
Kveðjur Steina
12. febrúar 2008 klukkan 11:22
6
Hrafndís Ragnhildar Sídu. skrifar:
Já ég komst að því að hann Einar frændi minn er á klakanum. Hef ekki hitt hann enn einn daginn fór Ása vinkona að tala um einhvern inar sem væri nýr vinur hennar.... þegar farið var að kafa dýpra í þetta komst ég að því að þetta skyldi vera frædni minn góður. Kannski maður prófi að heyra í honum næst þegar maður er í bænum.
Skemmtilegar myndir. Dauðöfunda ykkur af þessu köfunarstússi.
Skemmtilegar myndir. Dauðöfunda ykkur af þessu köfunarstússi.
03. mars 2008 klukkan 14:50
7
Steina Ara og Laugu skrifar:
Þetta var nú ansi sniðugt finnst mér. Endilega hafðu samband við Einar hann hefur gaman af að kynnast fjölskyldunni, hann flutti sjálfur til Íslands til þess að reyna að kynnast ættinni svo það er bara að hafa samband.
Kveðjur Steina
Kveðjur Steina
06. mars 2008 klukkan 16:27
kveðja af Héraði
Ragnhildur Ben
ps.reyni að koma skilaboðum til "stelpnanna" að vera duglegri að skrifa á síðuna.