Handverkssýning í Ráðhúsi Reykjavíkuringibjargirnar

Sælar allar Ingibjargir og aðrir lesendur.

Ég vil bara koma því á framfæri að það er mjög áhugaverð handverkssýning í Ráðhúsi Reykjavíkur 5.-8. okt. þar sem 57 sýnendur munu kynna (og selja) sitt handverk sem er hvert öðru fallegra og þar ætla ég einnig að vera með mitt handverk. Gaman væri að sjá einhverjar "Ingibjargir" kíkja við og  heilsa  upp mig þar.

Set hér með link inn á heimasíðu Handverks og Hönnunar sem stendur fyrir þessari sýningu/kynningu en þar er hægt að fræðast meira um sýninguna og sýnendurnar. http://handverkoghonnun.is/default.asp?sid_id=32491&tre_rod=001|016|001|&tId=1   

 

Hlakka til að sjá ykkur.

Hrefna Ara og Laugu

Athugasemdir

1
Inga Hanna skrifar:
Til hamingju með þetta - og svo er svo flott af þér myndin!!
27. september 2007 klukkan 23:09
2
Ragnhildur Aðalsteinsdóttir skrifar:
Já, ég er sammála Ingu Hönnu, rosa flott myndin af þér. Svo er þetta líka rosa flott sem þú ert að gera. Ég vona að einhverjar Ingibjargir sjái sér fært að mæta - ég verð því miður ekki í borginni þessa helgi.
28. september 2007 klukkan 21:39
3
Hrefna Ara og Laugu skrifar:
Takk fyrir þetta, en það er svona þegar myndefnið er gott :-) og já ég vona að ég sjái nú einhverja úr ættinni á svæðinu, það var víst mikil traffík þarna í fyrra en þá var ég ekki með.
01. október 2007 klukkan 22:36

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit