Boðið til veisluingibjargirnar

Sæl öll sömul.
Ég hitti þá feðga Jakob og Jón Hnefil í Kringlunni í gær, auk Svövu Jakobsdóttur sem er mikil myndarstúlka.
Lofaði Jakobi að koma þessu á framfæri sem flestra, margir eflaust búnir að fá póst sama efnis frá Tjörva.
Kveðja,
Inga Hanna

Kæru ættmenni!

Jakob S. Jónsson skrifar vegna áttræðisafmælis Jóns Hnefils!

Þar kom að því, að hann karl faðir minn er sem óðast að ná áttræðisaldri! Það gerist samkvæmt bókunum þann 29 mars næstkomandi. Mér þykir full ástæða til að halda uppá slíkt enda tilefni till mannfagnaðar og dagamunar aldrei of fá.

Þess vegna langar mig til að bjóða öllum ættmennum, sem á annað borð geta vettlingi valdið, til ofurlítils eftirmiðdagssamsætis,

laugardaginn 31 mars í Skólabæ við Suðurgötu í Reykjavík.

Nánari tímasetning og heimilsfang kemur í netpósti síðar. En ef þið vilduð taka eftirmiðdaginn frá, yrði enginn þakklátari en ég!

Svo bið ég ykkur, sem vilja og ætla að koma, að tilkynna mér það með orðsendingu á netfang mitt jakob.jonsson@telia.com og þá get ég á móti lofað, að enginn hverfur kaffiþyrstur eða kökusvangur af vettvangi.

Mikið væri svo gaman, ef allir gestir tækju með sér eitthvert skemmtiatriði í mannfagnaðinn … !

Ykkar frændi,

Jakob

Símar: 862 86 24, eða 0046707 59 80 30.

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit