Hæ Halla mín
Þakka þér fyrir síðast.(brúðkaup pabba þíns)
Leiðinlegt að heyra að þú varst að skilja ég vissi það ekki , en það er nú svo að öll él birta upp um síðir.'I dag er bolludagurinn á 'Islandi á morgun sprengidagur og síðan öskudagurinn á miðvikudaginn
Geturþú ekki Disney etthvað um íslenska siði,við fáum þá kanski að sjá teiknimyndafíkúrur að borða sér til óbóta í mæstumynd frá þeim (BOLLUR SALTKJÖT OG SÆLGÆTI ).
Þetta er nú bara smá kveðja frá íslandi og farðu svo vel með þig STEBBA frænka.
Smá öppdeit á fína íslenskuingibjargirnar
Sælar frænkur.Ég vildi bara heilsa upp á ykkur allar. Hef lítið litið hér inn og enn minna látið í mér heyra. Lífinu tókst að taka mig í soldinn ippon (mér hefur verið sagt að skilnaður á það til að gera það), en hausinn og daglega lífið er allt að komast aftur í lag. Af síðasta hálfa árinu er frá mörgu að segja, þið vitið náttúrulega að hann karl faðir minn gifti sig - mér þótti afskaplega vænt um að komast í þá veislu, og ég er svo glöð fyrir pabba hönd að hafa fundið svona yndislega konu.
Af mér að segja er það að mér gengur mjög vel í vinnunni, þar er alltaf nóg að gera. Þar er ég farin að vinna náið með Disney ásamt öðrum stórum "media" fyrirtækjum og svo er ég byrjuð í kvöldskóla. Reyni líka að fara út og hitta vinina öðru hvoru. Maður verður að gera það! Lífið er svo afskaplega tómlegt án vinanna og fjölskyldunnar.
Ég vona að þið hafið það allar gott og bið innilega að heilsa.
Halla Kolbeins og Þóru
Kveðja Gréta Danna og Siggu