Afmćlisdagur afa.ingibjargirnar

Í dag er afmælisdagur afa. Í mínum huga er þetta afskaplega merkilegur dagur og þegar ég var lítil vissi ég um 2 menn sem áttu afmæli 6 des. Það var afi og Kristján Eldjárn þáverandi forseti. Mér fannst afi mikið merkilegri maður en forsetinn.
Fyrir nokkrum árum sagði Steinunn Snædal frá Eirkíksstöðum hvað afmælisdagur afa míns tengdist bernksu hennar. Foreldrum hennar og systkinum var gjarnan boðið í afmæliskaffi í Vaðbrekku 6 desember. Þá var gengið báðar leiðir og farið yfir á Hrafnkeluhyl ef Jökla var á ís. Hún sagði mér að þessi heimsókn hefði byrjunin á jólunum í hennar huga. Auðvitað minntist hún líka á myndarskapin hjá henni ömmu í veisluföngum.

Blessuð sé minning afa.

Gréta Danna og Siggudóttir

Athugasemdir

1
Rósa Jóns og Guđrúnar skrifar:
6. des fannst mér alltaf mjög merkilegur, og einmitt vegna þess að þessir tveir merkismenn áttu afmæli þá. Svo er þetta þjóðhátíðardagur Finna.
Ég á líka mjög góða vinkonu sem líka á afmæli þennan dag.

Seint koma comment en koma þó! Desember hefur einhvern vegin bara liðið.... og ég ekki litið hér inn á síðuna fyrr en í kvöld.
23. desember 2006 klukkan 04:48

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit