Frćnkuhittingur hjá Inguingibjargirnar

Heilar og sælar.

Nú er komið að hitting hjá Ingu Aðalsteins, Reynihvammi 5.

Hittumst á fimmtudaginn 13 nóvember kl 20 núll núll.

Endilega koma með kökur og kruðerí, Ingunn Bé ætlar að koma með röööööösalega tertu, svo þess þarf ekki að hálfu annara.l

Verum duglegri en síðast, en þá mættu Inga, Gréta, Ragnhildur og Sigríður Ragna heima hjá Ingunni Bé.

Hittumst hressar.

Frćnkuhittinguringibjargirnar

Jæja, mér tókst að komast hérna inn, smá bras.  Ætlaði mér að setja þetta inn fyrir helgi en var bissí á ferðalagi með börn og mann.

Mér datt sem sagt í hug að halda frænkuhitting næstkomandi fimmtudag þann 25 september, heima hjá mér kl 20 núll núll.

Heimilisfangið er Dalsel 9 í Egilsstaðabæ.

Kaffi og te verður á boðstólnum, en þær sem sjái sér fært að mæta endilega komi með kruðerí ef þær vilja.
Sjáumst vonandi sem flestar :-)

Kveðja
Ingunn Bylgja Ragnhildardóttir  Sídu

Heimsókn á fróniđingibjargirnar

Jæja nú er ég að leggja í hann í fyrramálið, lyfti kl 7.50 að staðartíma frá Köben lendi kl 9.10 á föður og móðurlandinu.
Ég kem til með að búa í sumarbústað í Hvalfirði á Eystra Miðfelli í næstu 10 daga, til 13 júlí. Ef einhver hefur áhuga á að kíkja á mig þar þá bara sláið á þráðinn og tékkið hvort ég er heima , 0046 703004426 er síminn. Það má líka alveg hringja og bjóða mér í heimsókn......

Aðaltilgangur ferðarinnar er að kafa, sem ég hef aldrei gert á Íslandi svo þetta er svakalega spennandi finnst mér, veðurspáin fyrir helgina er alveg frábær svo ég vona bara að þetta lukkist vel.
Við kanski sjáumst...
Kveðjur að sinni
Steina Ara og Laugu

Sýning í Árbćjarsafniingibjargirnar

TÁLGAÐ ÚR GRÆNNI GREIN

Til sjávar, til sveita.

Hrefna Aradóttir


21. júní til 5. júlí 2008


Velkomin á sýninguna mína í Listmunahorni Árbæjarsafns.

Sýningin opnar laugardaginn 21.júní kl. 14.00

og verður síðan opin frá 10 til 17 alla daga.


Verkin sem ég sýni eru tréskurðarverk unnin eftir gömlum myndum.

Verkin tileinka ég foreldrum mínum

Til sjávar, tileinka ég pabba mínum Ara Bergþórssyni f. 1913 d. 1986, en hann var sjómaður á Norðfirði alla sína tíð. Eftir að hann kom í land vann hann við net hjá Netagerð Friðriks Vilhjálmssonar eins lengi og starfsgeta hans leyfði.

Sögurnar hans af sjónum og myndir frá þeim tíma eru kveikjan að verkum í minningu hans.


Til sveita, tileinka ég mömmu minni Guðlaugu Ingibjörgu Aðalsteinsdóttur f. 1925 d. 1991, en hún ólst upp á Vaðbrekku í Hrafnkelsdal sem er 397 m yfir sjávarmáli og næstum eins langt frá sjó og nokkur byggð er á Íslandi. Þó svo að hún hafi sest að í Neskaupstað og búið öll sín fullorðinsár við sjóinn þá var sveitin henni alltaf kær.

Myndir sem tengjast Vaðbrekku og sögur sem mamma sagði eru kveikjan að verkum í minningu hennar.


Annað, einnig sýni ég jólasveina sem hafa verið aðalframleiðslan mín síðan 1997. Síðast liðin 4 ár hef ég líka unnið fermingarstyttur og aðrar tækifærisstyttur eftir myndum og eru nokkrar þeirra einnig hér til sýnis.

 

Allir velkomnir.

Viđbót í Vađbrekkućttinaingibjargirnar

Mér fannst vera kominn tími á smá tilkynningu hér inn.
Þann 31. mars síðastliðinn bættist einn Vaðbrekkumaður í hópinn.
Hún Hanna Sigrún (dóttir Helga, sonar Jóhönnu) eignaðist lítinn strák.
Hann er alveg gullfallegur og heitir Gunnar Flóvent Guðmundsson.
Þið getið séð mynd af honum hérna: http://barnanet.is/geisli

Við erum að sjálfsögðu öll hæstánægð, nýbakaðir foreldrarnir auk foreldra minna (sem urðu þar með amma og afi) og svo að sjálfsögðu við systkinin sem erum nú stóru frænkur og frændi.

Ég óska Hönnu og Gumma aftur innilega til hamingju.

Bestu kveðjur,
Inga Steinunn.

Kveđjur frá Svíţjóđingibjargirnar

Sælar allar! Það er ósköp lítið líf á þessari síðu, allar vonir mínar um að þetta yrði tengiliður við ættina fóru út um þúfur.
Ég vil samt senda inn smá innlegg ef einhver skyldi hafa áhuga á að vita eitthvað um mig og mína.
 
Öll börnin eru flutt frá mér. Einar býr í Reykjavík og er búinn að vera þar síðan í oktober 2006.  Ívar býr í Malmö og lærir við Háskólann þar. Alva er á lýðháskóla i Arvika sem er uppi í miðri Svíþjóð (700 km að heiman).
Svo til þess að okkur mundi ekki leiðast erum við með tvö ný börn, 18 ára stelpu frá Tyrklandi sem heitir Pelin og 17 ára strák frá Japan sem heitir Ken. Þessir krakkar eru skiptinemar og ganga bæði í menntaskólann hér í Eslöv. Þetta heldur lífi í okkur núna yfir veturinn þegar lítið er hægt að kafa. 
 

Mig langar líka til að segja frá að við erum farin að leggja myndir á netið sem allir mega sjá 
http://overklighet.se/ og svo eru líka myndir sem eru meira bara fyrir fjölskylduna en ef einhver hefur sérstakan áhuga á að fá að sjá þær þá má biðja um aðgangsorðið á  steina.aradottir@bredband.net     
 

Ég vil líka þakka alveg ofsalega vel fyrir þær heimsóknir sem ég fékk síðastliðið ár. Ragnar og Sigurlína komu og svo komu Danni, Sigga og Fanney dótturdóttir þeirra, þessar heimsóknir glöddu mig alveg svakalega. 
 

Ég er að skipuleggja ferð til Íslands í sumar með kafarafélaginu sem ég er í, þetta verður væntanlega í júli, við komum til með að stoppa í viku til 10 daga og nota mest af tímanum til að kafa. Ef einhver á eða veit um gott sumarhús í nágrenni Reykjavíkur og vill leigja okkur það þá endilega hafið samband.
 

Kveðjur Steina Ara og Laugu

Frćnkuklúbburingibjargirnar

Þórveig kann ekki að blogga svo ég set þetta inn fyrir hana.

Þórveig Hákonar og Kapitólu ætlar að hafa frænkuklúbb heima hjá sér
sunnudaginn 30 des. 2007 kl. 15,00
Fundar efnið er afar áríðandi og eru allir sem vetlingi getað valdið beðnir um að mæta.
Gestgafi mun haf á boðstólum kaffi, te og svala (eins og í flugvélunum), gestir eru beðnir að taka með sér eitthvað smotterí að maula.

Þórveig á heima á Laugavöllum 16.



Kveðja Gréta Danna og Siggu

Handverkssýning í Ráđhúsi Reykjavíkuringibjargirnar

Sælar allar Ingibjargir og aðrir lesendur.

Ég vil bara koma því á framfæri að það er mjög áhugaverð handverkssýning í Ráðhúsi Reykjavíkur 5.-8. okt. þar sem 57 sýnendur munu kynna (og selja) sitt handverk sem er hvert öðru fallegra og þar ætla ég einnig að vera með mitt handverk. Gaman væri að sjá einhverjar "Ingibjargir" kíkja við og  heilsa  upp mig þar.

Set hér með link inn á heimasíðu Handverks og Hönnunar sem stendur fyrir þessari sýningu/kynningu en þar er hægt að fræðast meira um sýninguna og sýnendurnar. http://handverkoghonnun.is/default.asp?sid_id=32491&tre_rod=001|016|001|&tId=1   

 

Hlakka til að sjá ykkur.

Hrefna Ara og Laugu

Nýr Vađbrekkumađuringibjargirnar

Jón Hávarður Jóns og Guðrúnar og Íris eru orðin afi og amma.
Ragnar og Anna eignuðust dóttur í gær.
Innilega til hamingju.

Gréta Danna og Siggu

Grill á Hreindýraslóđumingibjargirnar

Í kvöld rauðkynntu vertarnir á Slóðum þau Fjóla og Jakob grillin buðu svo öllum Vaðbrekkumönnum að mæta með sínar rubbur til eldssteikingar.Þokkaleg mæting var og var þetta mikið gaman.Takk fyrir mig og mína Fjóla og Jakob.

Ragnhildur Ben og Sídu.
ps það eru myndir á myndasíðunni

Ađalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit